Hendur

Heilinn er stærsta kynfærið sem mannskepnan býr yfir. Persónulega finnst mér húðin koma þar á eftir, síðan kynfærin. Ef að maður hefði ekki húðina gæti maður ekki notið æsandi snertingar leikfélagans.

En mér finnst hendur vera ótrúlega æsandi!! Allt sem að hendur geta gert fyrir menn og konur. Hendur og fingur er hægt að hreyfa á alla kannta og framkalla með því þvílíkann unað. Sjálf er höndin hollust og ég held að flestir geti verið sammála mér um að það er auðveldast að fá fullnægingu með sjálfsfróun eigin handa heldur en með maka eða leikfélaga.

Undanfarið hef ég staðið sjálfa mig að því að horfa á hendur á fólki. Snyrtilegar, karlmannlegar hendur heilla mig. Ég get vel ímyndað mér hvar svoleiðis hendur færu vel. Fíngerðar og nettar kvenmannshendur kíkla mig líka. Það er eitthvað við þennan mjúka kvenleika.
Ég hreinlega fæ í'ana þegar ég svo fer að spá í hvar þessar hendur hafa verið um ævina. Hversu margar unaðstundir þær hafa framkallað, hversu margar fullnægingar eru á þeirra ábyrgð.

Ummæli

Vinsælar færslur