Allt á öðrum endanum

Úff... Ég á ekki til orð. Fetish-heimurinn er kominn út í svo mikið rugl og vitleysu að það hálfa væri hellingur.

Ég s.s. flutti út á land, í Fjarkistan, fyrir rúmu ári síðan. Þá missti ég svolítið tengslin í bæinn og við senuna og fetish-heiminn. Maður hefur fylgst með þessu með öðru auganu í gegnum netið, en ekki gefið sér mikinn tíma til að mæta á viðburði og annað. Ég hef aftur á móti reynt að vera dugleg að benda fólki á síður eins og fetishIceland og svoleiðis.

Ég kíkti inn á FetishIceland um daginn og það var ALLT í háa loft. Búið að henda UFSM af FetishIceland og allar færslur sem innihéldu skammstöfunina UFSM voru teknar út. Býst hálfpartinn við því að þessari færslu verði eytt fyrir að innihalda þessa skammstöfun. UFSM vildi rétta sáttarhönd en stjórn FetishIceland ekki... og bara bull og vitleysa. Eins og staðan er í dag þá mæli ég ekki með því að einstaklingar skrái sig inn á FetishIceland þar sem fólk er hvatt til að taka afstöðu gegn einu félaginu, en boðar á sama tíma að maður eigi ekki að mismuna neinu eða neinum. Maður hefði haldið að fullorðið fólk gæti nú sýnt þroska í samræmi við aldur og ekki hagað sér svona barnalega.

Ummæli

Vinsælar færslur