Kynörvandi efni - Aphrodisiacs

Hver kannast ekki við öll efnin sem seld eru í dótabuðum fyrir fullorðna sem eiga að auka kynhvötina? Gera kynlífið betra og innilegra?
Ég kannast við það, og ég hef fjárfest í svona efnum. En þegar allt kemur til alls hefði allt eins mátt henda peningnum út um gluggann.
Það sem ég held að fái þessi efni til að virka er hugurinn. Maður tekur inn pillu og hugsar, já, þessi pilla á að auka kynhvötina hjá mér. Þar af leiðandi fer maður að leiða hugann töluvert meira að kynhvötinni, sem oftar en ekki dugar til að auka hana. Því meira sem maður hugsar um kynlíf og örvandi hluti, því móttækilegri verður maður fyrir kynferðislegum áhrifum úr umhverfinu, sem endurkastast í meiri kynhvöt. Þetta er allavega mín hugmynd.

Fólk getur líka verið mismunandi, og mismunandi hlutir hafa áhrif á það.
Það er t.d. töluvert síðan ég komst að því að rauðvín hefur mjög kynferðisleg áhrif á mig. Eftir tvö glös gæti ég hoppað upp í rúm með hverjum sem er!! Áfengi almennt er svipað, en ekki svona öfgakennt.
Annað sem ég komst að um daginn er að kaffi er örvar mjög kynhvötina hjá mér. Um daginn var ég í skólanum og var alveg að sofna. Þá brá ég á það ráð að fá mér kaffi til að hressa mig við og efla einbeitinguna. Eftir nokkra sopa var kynlíf allsráðandi í hausnum á mér. Einbeitingin fór þá endanlega út um þúfur og ég íhugaði það að fara fram á klósett að fróa mér. Ég hef sjaldan orðið svona gröð að því er að virðast tilefnislausu.

Ummæli

Vinsælar færslur