Draumur

Ég á mér draum sem mig langar að deila með ykkur.

Sko, endur fyrir löngu var ég að spjalla við mann á netinu. Hann átti sér þá fantasíu að hitta einhverja, binda fyrir augun á henni, fara með hana einhvert og elskast við hana án þess að hún sjái hann. Síðan myndi hann fara með hana til baka og skilja hana eftir á sama stað og þau myndu aldrei hittast eða hafa samband eftir það.
Við létum þessa fantasíu hans verða að veruleika, nema blindfoldið var ekki á allan tímann, og það var bara yndilegt!! Þetta var yndisleg upplifun í alla staði. Kannski er það af því að hann var svo yndislegur! En þetta var bara æði.
Ég skrifaði meira að segja sögu um þetta.
Þetta atvik lifir enn í ljúfri minningu og mun vera þar um ókomna tíð.

Mig langar að upplifa svona aftur! Fara út í óvissuna og komast að því að hún er ekki hræðileg, heldur alveg frábært. Njóta augnarbliksins með einhverjum blíðum og góðum. Taka sér nógan tíma í að snertast og kúra saman. Aðal kikkið við þetta er að gera þetta með einhverjum sem maður þekkir ekki of vel, en jafnframt einhverjum sem maður er tilbúinn að leggja traust sitt á.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vá þetta er svakalegur draumur :)

Hlýtur að vera erfitt að finna einhvern sem maður treystir 100% fyrir þessu en á sama tíma að þekkja viðkomandi ekki meira en svo að hann sé fullkomlega framandi.

En klárlega spennadi fantasía :)

ESS

Vinsælar færslur