Í ljósi síðustu færslu

Í ljósi síðustu færslu og allra vitleysanna sem þessi ágæti einstaklingur gerði varðandi mig í denn tid, þá langar mig að skrifa stuttan leiðarvísi fyrir karlmenn sem vilja ná konu í rúmið.

Nr. 1. Talaðu við hana og hlustaðu á hana!! Virk hlustun virkar rosalega vel. Daðraðu létt við hana og hrósaðu útliti hennar.

Nr. 2. Snertu hana! Leggðu höndina á bakið á henni eða öxlina á henni. Láttu hnéið á þér óvart rekast utan í hennar. Þó svo að þú sért farinn að snerta hana, ekki ana út í næsta skref. Hún finnur vel fyrir snertingunni, og það að hún komi sér ekki undan þýðir bara að henni líki það, og sennilega æsir snertingin hana. Komi hún sér undan snertingunni, ættiru kannski að finna þér annað viðfangsefni!

Nr. 3. Ekki bara hafa höndina þarna, strjúku fingrunum létt í hringi og færðu þá kæruleysislega og hægt í átt að kynörvandi stöðum, án þess að fara alla leið. Það gerir hana mjög æsta!

Nr. 4. Þegar þið hafið næði, kysstu hana! En ekki beint á munnin, heldur höndina, öxlina, hálsinn. Helst aftanfrá. Ef þú kemur því við, láttu það koma á óvart, þegar hún á síst von á því.

Nr. 5. Strjúktu hana laust, yfir herðarnar, hálsinn, síðuna, mittið, mjaðmirnar, rassinn. Láttu hana finna að þú viljir hana. Með því að strjúka bara laust æsir þú hana meira upp og færð hana til að langa að þú snertir sig almennilega.

Nr. 6. Segðu henni að hún sé sexý og að hún geri þig óstjórnlega æstan. Láttu henni líða sem hún ein hafi þessi áhrif á þig.

Nr. 7. Klæddu hana úr, hægt og rólega. Njóttu þess að snerta eða kyssa bera húð hennar og ekki flýta þér. Og mundu: Klæddu hana helst úr öllu! Ekki skilja sokkana eftir eða álíka hallæri!

Nr. 8. Sjáðu til þess að hún sé nógu æst og örvuð til að taka á móti þér inn í sig, hafiru fylgt öllum hinum skrefunum ætti það ekki að vera vandamál.

Nr. 9. Þetta kann að hljóma heimskulega, en EKKI pressa á hana að fá það!! Það virkar ekki svoleiðis og er oftast turn-off fyrir konuna. Margar konur fá það ekki þegar þær sofa hjá einhverjum í fyrsta skipti. Þú vilt ekki að hún feiki það, er það?

Nr. 10. Kúr eftirá er nauðsynlegt!!! Þó svo þú fílir ekki að kúra, gerðu það samt! Þó það sé bara í 2 mín.

Þessi 10 skref þurfa ekki að taka langann tíma, það er hægt að komast í gegnum þau hratt og örugglega á einu kvöldi ;o)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir þessa þörfu áminningu, veitir örugglega ekki af því að láta okkur vita af þessu reglulega :)

Annars þá kemur það held ég oftast með þroskanum, reynslunni og örygginu að maður veitir mótaðilanum meiri athygli frá a-ö og gefur öllu meiri tíma og alúð.

Það er gríðarleg ánægja og í raun bónusfullnæging sú tilfinning sem maður fær við að fullnægja konu að hluta eða öllu leiti. Að láta vel að og finna áhrifin stigmagnast er ótrúlega gefandi og doblar eigin ánægju af kynlífinu.

ESS

Vinsælar færslur