Án subs

Oft á tíðum leiðist mér subbar, bara það eitt að vita að einhver er subb vekur upp í mér ákveðna hörku og skeytingaleysi. Ég er oft búin að ákveða fyrirfram að viðkomandi sé aðeins að leita að kynlífstengdum hlutum, og ég höfði alls ekki til hans. Oftast hef ég rétt fyrir mér. Meira að segja þó svo ég taki fram í þeim auglýsingum sem ég er með að ég sé EKKI að leita að kynlífsþræl eða kynlífsleikfangi þá hrinja inn á msn hjá mér subbar sem vilja bara þjóna konu kynferðislega.
Ég veit ekki hvort það sé til valbundin lesblinda, en ég held að mjög margir þjáist af henni.

Annars held ég að ég sé ekki svo hörð dómína, ég er sadisti og það er ekki hægt að fara framhjá því, en ég get verið mjög sveigjanleg... Ég hef samt ekki hitt einstakling sem ég virkilega nýt þess að drottna yfir og stjórna á allan mögulegan hátt. Mig langar það samt! Mjög mikið og ég tel að það búi mikil og ákveðin dómína í mér, en sanngjörn og eflaust mjög skemmtileg.... fyrir réttan sub. Vandamálið er að ég hef verið að leita að rétta subbinum af og til í nokkur ár en engann fundið sem stendur undir þeim væntingum sem ég set.

Ummæli

Vinsælar færslur