Fangelsiskynlíf

Fyrir all nokkru síðan var ég að spjalla við mann á netinu sem sat í fangelsi. Ég vissi ekki að menn gætu verið að hangsa á netinu í fangelsi.
Hann var, eins og svo margir aðrir, graður og vildi endilega hitta einhverja sæta stelpu til að gera eitthvað skemmtilegt með. Þeir sem eru öðruvísi og standa út úr, svo maður tali nú ekki um einhver sem er "hættulegur", eru óneitanlega meira spennandi en aðrir. Það er eitthvað óútskýranlegt kikk við þá. Fangar, bófar, löggur, slökkviliðsmenn, rokkstjörnur, þekktir tónlistarmenn, listamenn, ríkir, leikarar, opinber andlit, flugstjórar... og svona mætti eflaust lengi telja, þó svo mér detti ekki fleiri í hug í bili.

Segjum sem svo að ég hefði farið að hitta þennan aðila? (Reyndar þá endaði það frekar snögglega, því hann gufaði upp). Hvað þá? Hvernig hefði þetta farið fram? Þegar ég hugsa um fanga og fangelsisheimsóknir sé ég fyrir mér stórt fundarherbergi með mörgum litlum borðum þar sem fangar geta sest niður með vinum og ættingjum undir eftirliti fangavarða, eða þá svona símabásar þar sem fanginn er á bak við gler og talar við gest sinn í síma. Ég einhvernveginn get ekki séð það fyrir mér að maður stundi kynlíf í þesskonar aðstæðum.
Ég kíkti inn á heimasíðu Litla Hrauns og þar kom fram að heimsóknir fari fram í heimsóknarherbergi. Ef til vill fá fangar næði með gestum sínum og geta þá gert það sem þeim listir. En það virðist vera hægara sagt en gert að fara að heimsækja fanga á Litla Hraun. Fangar verða víst að sækja um að fá heimsókn frá viðkomandi aðila og er síðan úthlutað heimsóknartíma. Á sama tíma og þetta er spennandi tilhugsun, þá finnst mér þetta líka svolítið fráhrindandi....

Ummæli

Vinsælar færslur