Þræll

Ég fann hann!! Ég fann einstakling sem hentar mér, sem ég er tilbúin til að drottna yfir og sem veitir mér það sem ég þarf til að þroska mig sem dómínu.
Hann kom heim til mín um daginn og ég setti honum fyrir lista af húsverkum, sem hann vann með ágætum. Það sem ég hef hálfpartinn óttast við að fá mér þræl er að andrúmsloftið verði þvingað. Að það eigi eftir að vera einhver spenna í loftinu sem er óþæginleg og truflar. En mér til mikils léttis var það ekki svo, ég gat verið ég sjálf í kringum hann og nærvera hans truflaði mig ekkert.
Aftur á móti ætla ég að fara mér hægt. Ég vil fá traust samband doms og subs. Ég vil fá aðdáun og virðingu, ég vil þekkja mörk hans til hins ítrasta, ég vil vita hvað hreyfir við honum og hvað ekki, ég vil læra að leika á hann eins og hvert annað hljóðfæri. Ég vil fá svo margt og held að með því að flýta sér geti maður skemmt fyrir. Það þarf að sníða til samskeitin til svo þau passi fullkomlega áður en maður lætur reyna á þau.
Þannig að þegar hann kom um daginn og spurði í hverju hann skildi vera klæddur sagði ég honum hreint út að hann ætti að vera í sínum eigin fötum. Hann væri ekki búinn að vinna sér inn rétt til annars. Næst fær hann kannski að ganga með hálsól... Þar næst læt ég hann ef til vill vera með hálsólina og ber að ofan. Þar þar næst gæti verið að ég láti hann vera alveg naktan, nema með svuntu og hálsól. Síðan kemur einhverntíman að því að ég láti hann skríða um nakinn í taumi, með ballgag og butplug... En hann verður að hafa unnið sér það inn!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Verður gaman að fylgjast með þessu ;) hvað þið gerið

Vinsælar færslur