Skyldukynlíf

Við G gerðum með okkur samkomulag fyrir skemmstu. Það eru reyndar komnar nokkrar vikur síðan. En í því samkomulagi fellst að ef við förum seinna að sofa en kl. 22:30 kvöldið fyrir vinnudag verður ekki stundað kynlíf, en í samkomulaginu felst jafnframt að við stundum kynlíf a.m.k. einusinni í viku. Þannig var það núna í gær að það var liðin vika frá því að við stunduðum kynlíf síðast. Ég minnti G á það og þegar við skriðum upp í rúm stunduðum við eiginlegt skyldukynlíf. Það var meira notalegt en annað. Það kom mér á óvart hve líkamlega æst ég var, án þess að vera endilega gröð. Allavega ekki gröð í þeim skilningi að maður fyllist þrá og ákafa í að fá sitt. Ég var gröð án þess að láta ástríðuna og gredduna stjórna för. Ótrúlegt en satt þá var kynlífið líka mjög gott. Það var mjög fullnægjandi og ég fékk það ótrúlega fljótt. Að sama skapi sofnaði ég sáttari en eftir eftir margan annan dráttinn.

Ummæli

Vinsælar færslur