Fullnægingar karla.

Ég lenti í einu svolítið skrítnu í gærkvöldi.
Við vorum að leika okkur, allt gekk vel og var bara gaman. Hann renndi sér fimlega inn í mig og fór að ríða mér, síðan stoppaði hann og fékk það! Bara si svona! Og við vorum rétt að byrja.
Ég held að við höfum aldrei lent í þessu saman. Ég hef lent í þessu með öðrum mönnum, en ekki með G. Hann tók þessu reyndar bara vel og við hlóum að þessu og ræddum þetta aðeins. Svona lagað gerist.
Þegar ég fór að hugsa um það, þá held ég að ég væri sáttari við þetta vandamál heldur en andstæðuna. Þ.e. að hann ætti erfitt með að fá það með mér(það hefur reyndar komið fyrir og var af sökum lyfja). Ég hugsa að ef að maður ætti erfitt með að fá það með konu af engri sjáanlegri ástæðu þá muni það taka sinn toll. Kannski ekki eftir fyrstu nokkur skiptin, en þegar til lengdar væri litið þá myndi ég að minnsta kosti fara að efast um sjálfa mig sem konu og kynveru. Ég vil að maðurinn minn sé fullnægður hjá mér, ég vil að hann geti fengið fullnægingu með mér! Fyrir mér skiptir þetta máli. Hann þarf ekki að fá það í hvert einsasta skipti. Það hefur komið fyrir að G fái það ekki þegar við stundum kynlíf. En hann fær það þá bara næst. Það truflar mig ekki. Hitt væri annað mál, að hann fengi það of fljótt. Þá væri hægt að haga kynlífinu þannig. Hann gæti t.d. afgreitt mig fyrst og fengi síðan sitt á eftir. Það væri hægt að nota smokk eða hann gæti fróað sér áður en við færum upp í rúm eða notað cock-ring. Það eru meira að segja til efni sem draga úr næmni kóngsins og þannig frekar fullnægingu. Þetta er einhvernveginn viðráðanlegra vandamál.

Ummæli

Vinsælar færslur