DÖ!!

Ég var að horfa á Opruh í gær. Þar var hún að fjalla um kynlíf hjóna, kynlaus hjónabönd og vandræði á sviði kynlífs hjá pörum. Til sín fékk hún kynfræðing, konu sem sérhæfir sig í kynlífi fólk og veitir fólki kynlífsráðgjöf.
Í þættinum kom fram að yfir 90% fólks sem leitar til þessa kynlífsráðgjafa gerir það vegna vandræða á kynlífssviðinu.

DÖ!! Afhverju ætti maður að leita sér ráðgjafar á sviði kynlífs ef að maður á ekki í neinum vandræðum með það?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Það sem mig langar til að vita er, hvers vegna leita 10% sem eftir eru til kynlífsráðgjafa.
Ætli þeir eigi í vandræðum með að laga kaffi?
Prinsessan sagði…
Hehehe.... Það kom ekki fram í þættinum. En mögulega gæti það verið til að gera gott kynlíf enn betra.
Nafnlaus sagði…
Vonandi...

En hvað sagði nú þessi kynfræðingur? Var eitthvað sniðugt sem manneskjan glopraði út úr sér?
Prinsessan sagði…
Hún sagði helling um traust og nánd og þess háttar. En ekkert beint um kynlíf...

Vinsælar færslur