Í vinnunni

Núna sit ég í vinnunni og læt hugann reika...

Ég er farin að hallast að því að ég sé eins og versti karlmaður! Kynlíf er mér alltaf ofarlega í huga. Ég stend sjálfa mig oft að því að vera óafvitandi farin að hugsa um kynlíf. Mér finnst kynlíf æðislegt og þrátt fyrir að hafa stundað það virkt í bráðum 10 ár þá er ég alltaf að uppgvöta nýjar og nýjar hliðar á því. Eins og síðasta færsla segir, í dag er ég að uppgvöta sælu þess að vera sleikt! Síðasta færsta er reyndar ekki alveg rétt, ég man eftir einni hjásvæfu sem sleikti betur en nokkur annar! Hann lagði metnað sinn í að sleikja vel og hafði þar af leiðandi gífurlega mikla reynslu í því.

Einhverntíman las ég að karlar séu á toppnum hvað varðar kynlíf um tvítugt, en konur ekki fyrr en um þrítugt. Ég hugsa að það sé talsvert til í því og get ekki beðið eftir að verða þrítug!! Þá held ég reyndar að ég þurfi að fá mér viðhald til að halda í við mig ;o)

Best að snúa sér aftur að vinnunni.

Ummæli

Vinsælar færslur