Sleikt

Í gegnum tíðina hef ég ekki verið neitt sérstaklega hrifin af sleikingum. Jújú, það er fínt krydd í kynlífið, en alveg hreint langt frá því að vera nauðsynlegt. Síðan undanfarið hefur þetta verið að kítla mig. Að vera sleikt og það almennilega!

Ég held að það sem hefur verið að þvælast fyrir mér er að leikfélaginn hefur ekki haft natni við að læra á mig og finna út hvað virkar best á mig.
Ég hef verið með leikfélögum sem sleiktu mig einfaldlega alltof fast!! Sama þó svo ég benti þeim á að þetta væri of fast. Eða þá að ákafinn hafi verið of mikill. Aðrir hafa ekki haft þolinmæði í að sleikja mig nógu lengi til að það gerði eitthvað fyrir mig. Enn aðrir hafa einhvernveginn ekki hitt á réttan stað. Og svo skiptir dagsformið líka ÖLLU máli. Ef maður er ekki í stuði fyrir það, er annarshugar eða óöruggur, þá bara gerist ekkert og maður hálfpartinn bíður eftir að leikfélaginn fái nóg.

Ég hef nokkrum sinnum rætt þetta við G og núna um daginn tók hann sig til og hreiðraði um sig á milli lappanna á mér.
Hann reyndar byrjaði á því að kyssa mig, strjúka yfir brjóstin, klípa létt í þau og kyssti sér síðan leið niður í klofið á mér. Hann var ekkert að flýta sér, sleikti nárann og kyssti lífbeinið, færði sig nær og gældi við ytri barmana áður en hann læddi tungunni á milli þeirra. Ég var orðin æst fyrir, en þarna... VÁ! Hann sleikti mig blíðlega frá snípnum og niður og svo aftur upp. Hann fann út nákvæmlega hvar mér fannst best að vera sleikt og hvernig væri best að gera það!
Það sem einkenndi þetta allt saman var hvað hann gerði þetta rólega, enginn æsingur og engin pressa og ég bara naut þess og sveif um á skýi. Ég þorði ekki að anda eða gefa frá mér nokkurt hljóð af hættu við að skemma stemminguna. Ég varð svo æst að ég eiginlega vissi ekki hvað ég átti að gera. Mig bókstaflega verkjaði í brjóstin og var á brúninni að fá það nær allan tíman. Þegar hann síðan ætlaði að pása smá hreinlega varð ég að fá það!! Ég réðst á snípinn og hann hjálpaði til með því að putta mig og á mettíma sveif ég í fullnægingarvímu. Ég varð nær lömuð á eftir.

Núna við það eitt að skrifa þessa færslu þá fer sæluhrollur um mig og ég finn að ég blotna!

Ummæli

Vinsælar færslur