Lengd kynmaka

Ég elska kannanir og rannsóknir og þess háttar. Og auðvitað sérstaklega þegar það kemur að kynlífi. Þetta gróf ég upp í gömlu Nýju Lífi :D

Kannanir hafa gefið í skyn að Bretar verja tæpum 40 klukkustundum á ári í ástaratlot – og það er Evrópumet. Þetta er hvorki meira né minna en heil vinnuvika! það eru um það bil tvö skipti í viku – eða 109 samfarir á ári. Meðallengd kynmaka í Bretlandi er 21 mínúta.
Ítalir ljúka kynmökum af á 14 mínútum og Spánverjar eru oftast búnir að fá fullnægingu eftir 15 mínútur.
Meðaltímalengd samfara í Þýskalandi eru 18 mínútur en 20 mínútur í Frakklandi.

Ef við skyggnumst vestur um haf þykjast Bandaríkjamenn reyndar vera enn iðnari við kolann. Þeir segjast verja 61 klukkustund á ári í ástaratlot og segjast að meðaltali vera að í 46 mínútur í hvert skipti.
Í Asíu er hins vegar að finna metið á hinn veginn. Japanir stunda kynmök í sjö klukkutíma á ári og tekur hvert skipti aðeins um 14 mínútur.

Ummæli

Vinsælar færslur