Bíó

Ég fór í bíó um daginn. Það var stappað fyrir framan miðasöluna og í röðinni sá ég mann sem ég vissi að ég átti að kannast við, en ég kom honum bara ómögulega fyrir mig. Það var alveg rosalega óþæginlegt. Þetta var myndarlegur, hávaxinn maður með svolítið skakkar tennur. Ég vissi að hann hafði fitnað svolítið frá því að ég sá hann síðast, en vissi bara alls ekki hvar ég hafði séð hann síðast. Ég reyndi að tengja hann hingað og þangað, í skólann, vinnuna, vinahópinn, búðir sem ég fer reglulega í, en ekkert gekk. Þá datt mér í hug hvort ég hefði kannski sofið hjá honum. En ég gat samt ekki sagt til um það með fullri vissu. Það hefur þá amk ekki verið mjög eftirminnilegt!! En það gæti samt alveg verið að ég hafi sofið hjá honum....

Ég hef ekki ennþá fundið rétta svarið við hvaðan ég þekki þennan mann.

Ummæli

Vinsælar færslur