Fyrirspurn

Ég fékk þessa fyrirspurn um daginn "Hefur þú einhverntímann verið hengd upp á löppunum og þér fullnægt?"

Stutta svarið er Nei.

Ég held að það sé frekar óþæginlegt að vera hengdur upp á löppunum þar sem allt blóðið fer upp í höfuð og fljótlega missir maður víst meðvitundina í þannig stellingu. Ég aftur á móti þekki það ekki af eigin reynslu. Annar hængur sem ég sé á þessu er "þér fullnægt" hlutinn. Það eru ekki margir menn sem hafa fullnægt mér án þess að ég komi þar sjálf við sögu, ég get talið þá upp á annarri hendi. Ég held að þeir séu þrír sem hafa fullnægt mér án þess að ég hafi fróað mér sjálf með þeim. Eftir sitja tuttugu-og-eitthvað sem hefur ekki tekist það. Menn hafa meira að segja stært sig af hæfileikum sínum við að fullnægja konum og sagst alveg vita upp á hár hvað þyrfti til, en þegar á hólminn var komið voru þeir eins og beljur á svelli og vissu hreinlega ekki hvað snéri upp og hvað niður. Það finnst mér alveg rosalega pirrandi, en kannski er það bara ég....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Önnur fyrirspurn... Hvað voru margar manneskjur í þínu stærsta hópkynlífi?
Nafnlaus sagði…
Mér finnst bloggið þitt alger snilld.

Ég man að hafa lesið að þig vanti að vita hvort einhver lesi bloggið þitt.
Ég held að það að hafa opið á fyrirspurnir sé alger snilldarleið til að hjálpa þér við að halda lífi í tuskunum hérna.
Flott svar btw og hressandi að sjá skrifin þín hérna. Stundum er gott að vita að það eru ti stelpur sem dýrka kynlíf eins og þú!

Vinsælar færslur