Fyrirspurnartími

Ég verð að viðurkenna að mér finnst rosalega gaman að fá fyrirspurnir.
Kannski ég ætti að hafa svona fyrirspurnar dálk, gæti ef til vill gefið upp tölvupóstfang þar sem fólk getur sent á mig fyrirspurnir, umhugsunarefni eða vandmál. Ég held að það gæti verið spennandi. Hvað finnst ykkur?

En núna ætla ég að svara fyrirspurn sem barst í gegnum kommentakerfið.

Hvað voru margar manneskjur í þínu stærsta hópkynlífi?

Ég hef nokkrum sinnum farið í trekant. Oftast með auka karlmanni, en þó þegar ég hugsa um það þá hef ég tvisvar verið með konu og karli. En það er mjög langt síðan það var. Við G höfum spáð í það, en það er hægara sagt en gert að fá konu með sér. Það virðast líka öll pör á einkamál.is vera að leita að konu til að leika með, svo eftirspurnin er mikil, en framboðið lítið sem ekkert. Núna er komin út fyrir efnið.
Flest höfum við verið fimm saman. Það vorum við G, tveir kunningjar okkar og bólfélagi annars þeirra. Hún var alls ekki fyrir aðra konu, svo það voru þrír karlmenn um tvær konur. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld. Einhverntíman ætlaði ég nú skrifa sögu um það, en gaf mér aldrei tíma til þess.

Kannski maður skrifi um það sögu við tækifæri. Mér finnst algjörlega vera kominn tími á sögu! En ætla ekki að lofa neinu.

Ummæli

Vinsælar færslur