Mont

Ég kíkti inn á gestabókina mína um daginn. Það eru alveg heilir fimm einstaklingar búnir að skrifa í hana! En allir mjög hrifnir og það er bara gaman. Það tók mig talsvert langan tíma að lesa það sem þeir skrifuðu, þar sem forritið einhverra hluta vegna getur ekki birt íslenska stafi þannig að það kemur eitthvað rugl í staðinn.

Ég fékk líka mjög skemmtileg skilaboð í gegnum MSN um daginn. Þar var einn ánægður lesandi sem sagði mér að bloggið mitt hafi gert helling fyrir hann og samband hans við kærustuna hans. Það yljaði mér um hjartaræturnar að bloggið mitt gat orðið þeim til hjálpar eða amk hjálpað þeim að krydda kynlífið.

Mig langar orðið í lítið sætt ævintýr... Segi ykkur meira frá því næst ;)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
er ekki að koma saga
Nafnlaus sagði…
krot í gestabok ;)

Vinsælar færslur