69

Fílaru 69?

Ekki ég.
Málið er að eins æðislega og þetta hljómar, fólk er að veita hvort öðru munnmök á sama tíma, þá finnst mér þetta ekki virka eins vel í verki. Aðgengið er alltaf vandamál og maður getur ekki notið þess að vera sleikt eða dundað sér við að totta, því hitt þvælist alltaf fyrir!! Þegar undaðsbylgjurnar hríslast um mann má maður ekki gleyma sér og hætta bara að totta því þetta er svo gott, og þegar maður er að vanda sig við að totta þá truflar það mjög svo að einhver sé að fikta í manni í leiðinni. Eða það finnst mér að minnsta kosti.

Svo er það stellingin sjálf.
-Ef að hann er ofaná hefur hann gott aðgengi að manni, en maður sjálfur er staðsettur á milli fótanna á honum og með tippið upp í sér. Í fyrsta lagi þá hefur maður ekki mikið svigrúm til að totta almennilega og í öðru lagi, ef að hann er vel niður vaxinn gæti maður hæglega kafnað, þar sem tippið rennur mjög auðveldlega ofaní kok í þessari stellingu og maður hefur ekki mikið rými til að taka það út úr sér... Það er erfitt að lýsa þessu, en ég hef oftar en ekki verið í andnauð í þessari stellingu.
-Ef að maður er sjálfur ofaná þá gengur þetta mun betur. Maður getur tottað almennilega og það er lítil hætta á köfnun. En aðgengið að píkunni er takmarkað og hann þarf að hafa svolítið fyrir því... held ég, ég hef aldrei verið með kvenmanni í þessari stellingu svo ég veit eiginlega ekkert um hvað ég er að tala. En málið er líka að mér sjálfri finnst almennt séð ekki þæginlegt að vera ofaná og finnst ég hálfpartinn vera að kæfa gaurinn á milli læranna á mér.

Ummæli

Vinsælar færslur