Gestabókin

Mér finnst það alveg æðislegt að nýjasta færslan í gestabókina er síðan núna í janúar 2012!

Það er ennþá einhver sem les bloggið mitt. Þetta er ekki til einskins.

Viðkomandi spurði hvað mér finndist um kynlíf í fötum.

Ef að maður klæðir sig upp og hefur svolítið fyrir því er það bara gaman, sérstaklega ef að maður á einhver flott og sexý föt sem að leikfélaganum finnst gaman að. Ég á ein þrjú korsett núna, hvert öðru fallegra og ég elska að vera í þeim, en ég er alls ekki nógu dugleg að ganga í þeim (það eru ekki mjög mörg tækifæri til að ganga í alvöru hevý djútý korsetti) og því síður fara í þeim upp í rúm.

Í öllum mínum rúnk-fantasíum er ég samt alltaf í pilsi sem má lyfta upp til að hafa aðgang að því allra heilagasta. Það er eitthvað sem ég hef ekki gert langa lengi og kannski tími til kominn að fjárfesta í sætu pilsi.

En þessi maður hafði mestann áhuga á gallajökkum. Ég verð að hryggja hann með því að segja að ég á engann gallajakka og hef held ég aldrei átt gallajakka. Að minnsta kosti hef ég þá ekki mikið gengið í honum.
Hver hefur sitt kink. Hvað fötin varðar þá eru það pils og korsett hjá mér :o)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Komdu með æsandi sögu þ.s. korsett kemur við sögu; gerðu það fyrir okkur sem lesum skrifin þín.
Nafnlaus sagði…
Fer ekki að koma tími á nýja færslu?

Vinsælar færslur