Hr. Skjaldbaka

Ég datt niður á umræðu inni á fetlife.com um furðulegar reglur eða refsingar sem dommar láta subbana sína hafa. Upphafskona þrásins sagði að domminn hennar hafi skipað henni að taka alltaf Hr. Skjaldböku, sem er víst skjaldbökubangsi, með sér ef að hún færi bílleiðis að heiman. Þannig að hún þarf núna í hvert skipti sem hún fer eitthvað á bílnum að taka bangsann með sér og leyfir honum víst að sitja í farþegasætinu í bílbelti og allar græjur.

Mér fannst þetta ótrúlega fyndið eitthvað! Frumlegt og skemmtilegt.

Hver segir BDSM þurfi endilga að vera leður, latex, bindingar og læti??

Ummæli

Vinsælar færslur