BDSM-partý

Á milli jóla og nýárs fór ég í BDSM partý. Þetta partý var án efa eitt það skemmtilegasta sem ég hef farið í.

Til að taka allan vafa af, þá eru þessi partý ekki kynferðisleg. Það er ekki stundað heitt og sveitt kynlíf í stofunni, subbar eru ekki á hnjánum að totta hvern þann sem vill og fólk gengur ekki um nakið, tjah... nema þessi eini.
Aftur á móti þá fólk klætt í skemmtileg föt, leður, latex og korsett eru til dæmis staðlaður fatnaður fyrir svona partý. Svo er ekki óalgengt að það sé leikið. Fólk kemur með uppáhalds dótið sitt og leyfir öðrum að sjá og prófa. Hýðingar og bindingar og allskonar leikir eiga sér stað. Ef að einhvern langar til að leika, þá er mjög líklegt að einhver annar sé tilbúinn í að leika við viðkomandi.

Fljótlega eftir að ég kom í partýið var einn bundinn niður á stofuborðið og hýddur með allskonar áhöldum. Nokkrir skiptust á um að rassskella hann og slá með ýmsum áhöldum. Mér fannst mjög áhugavert að fylgjast með því sem fram fór, skoða tæknina, hvernig þeir báru sig að og að sjá viðbrögð þess sem bundinn var.
Einn dominn þarna náði sérstaklega vel til mín. Eftir að hafa séð hann fara höndum um strákinn á borðinu langaði mig allt að því að bjóða mig fram sem næsta fórnarlamb en þar sem ég er ekki mikið fyrir að leika fyrir framan aðra lét ég það alveg vera.

En hver veit... Kannski næst.

Ummæli

Vinsælar færslur