...enn betra að stunda það

"já alltaf gaman að tala um kynlíf og enn betra að stunda það" 


Ég fékk þessi skilaboð á einkamál fyrr í dag og þessi setning stakk mig svolítið í augun. 

Ég elska að tala um kynlíf, spá í það og lesa mér til um það. Skoða það frá öllum mögulegum og ómögulegum hliðum. Heyra sjónarhorn annarra og deila mínu. Og ekkert endilega með það að markmiði að fara að stunda það með viðkomandi. Það er alltaf gaman að tala um kynlíf, og hvað mig varðar getur það verið skemmtilegra en að fara svo að stunda það. 
Þegar ég skrifa þetta núna átta ég mig á því að þetta hljómar alls ekki vel, þetta stangast allavega á við almennt viðhorf. En hvað get ég sagt, svona er ég bara. Enda ef að mér þætti betra að stunda kynlíf en að tala um það, þá héldi ég varla þessu bloggi úti. Ég væri að sjálfsögðu að eyða tímanum í að stunda kynlífið en ekki blogga um það. 

Ummæli

Vinsælar færslur