Þessi eini

Ég skrifaði smá um BDSM-partýið milli nýárs og jóla um daginn. Í þeirri færslu fullyrti ég að menn gengu ekki um naktir í BDSM-partýinum en bætti svo við "tjah... nema þessi eini".

Þegar ég kom í partýið var þar einn strákur sem var bara í nærbuxum, ég hef ekkert út á það að setja enda var útsýnið mjög gott. Ég held að fólk þurfi að hafa sjálfstraust í lagi til að vera svona fáklætt fyrir framan aðra eins og ekkert sé. Það þarf líka eflaust að hafa þeim mun betra sjálfstraust sé það kviknakið. Þessi strákur setti það ekki fyrir sig og var kominn úr nærbuxunum þegar leið á kvöldið. Ég verð að viðurkenna að ég átti erfitt með að horfa ekki. Og auðvitað kíkti ég smá. Nammi namm! Það skemmdi síður en svo fyrir að hann er mjög sætur.
Án þess að fara út í smáatriði þá fannst mér hann mjög girnilegur og fór mikið að velta því fyrir mér hvort limurinn hans væri shower eða grower. Sé hann grower þá er von á mjög góðu fyrir þá stelpu sem er svo heppin að fara heim með honum.
Eftir smá tíma með hann nakinn í partýinu eins og ekkert sé var það líka ekkert mál. Nekt hans vakti enga blygðunarkennd og var enganveginn truflandi í samskiptum við hann. Það er ótrúlegt hversu fljótt maður hættir í rauninni að spá í þetta.

Ummæli

Vinsælar færslur