Púkinn vakinn

Ég er skiptir eða switch eins og það heitir á úglensku. Það þýðir að þegar kemur að BDSM get ég notið mín hvort tveggja sem drottnandi aðilinn og sem undirgefni aðilinn. Undanfarið hef ég þó verið í undirgefna gírnum og ekki haft neina löngun til að drottna og hef þar af leiðandi frekar leitað eftir mönnum sem eru drottnandi í bólinu með góðum árangri.

Ekki alls fyrir löngu var ég að hitta mann sem vill vera ráðandi aðilinn þegar kemur að bólfimi. Ég var búin að hitta þennan mann nokkrum sinnum og hver hittingurinn var öðrum betri.
Eitt skiptið kem ég til hans og hann biður mig um að binda sig. Hann vildi sem sagt vera bundinn niður í rúmið. Ég var frekar treg við það en á endanum sló ég til.
Ég batt hendurnar á honum við rúmfæturnar, þannig að hann gat ekkert notað hendurnar og gat heldur ekki losað sig.
Við það að sjá hann svona bundinn og varnarlausann vaknaði púkinn í mér. Ég var með eitthvað af dóti með mér og fór mikið að velta því fyrir mér hvað ég gæti gert. Hann aftur á móti heimtaði tott. Ég byrjaði að leika við liminn á honum smá, æsa hann upp, ná honum í fulla reisn og sýna honum hvað í mér býr og fékk mjög góðar undirtektir. Síðan stoppaði ég. Hann vildi auðvitað að ég myndi halda áfram en gat lítið gert sjálfur til að fá mig til þess. Eftir smá stund hélt ég þó áfram við iðju mína en stoppaði fljótlega aftur. Hann vildi meira og ég skil það mjög vel. Mér skilst að ég sé mjög góð í að veita munnmök.
Ég aftur á móti vildi leika! Ég sagði honum að ég skildi halda áfram að totta hann, eftir að ég væri búin að setja eina klemmu á punginn á honum. Eða að minnsta kosti prófa. Það kom eitthvað hik á hann en þar sem hann var ekki beint í aðstöðu til að stoppa mig náði ég í klemmupokann og valdi eina litla sæta klemmu og kom henni varlega fyrir á pungnum á honum. Þetta fannst honum ekki svo slæmt og að launum fékk hann tott í smá stund. Eftir góða stund stoppaði ég aftur og sagðist aðeins myndi halda áfram ef ég mætti setja aðra klemmu á hann. Hann samþykkti það strax, þar sem fyrsta klemman hafði ekki truflað hann mikið við tottið. Önnur klemman fór á og að launum fékk hann meira tott. Svona gekk þetta í nokkra stund, af og til hætti ég að totta hann og til að fá meira tott þurfti hann að fá klemmu á punginn á sér.
Klemmurnar á pungnum á honum voru orðnar kannski tíu og það var liðin svolítil stund frá því að fyrsta klemman fór á þegar ég ákvað að það væri kominn tími til að stoppa. Leyndarmálið við klemmur er nefninlega að það er miklu miklu verra að taka þær af eftir að þær hafa verið góða stund á húðinni, heldur en að setja þær á eða hafa þær óáreittar. Ég tók fyrstu klemmuna af honum og hann greip andann á lofti. Púkinn innra með mér hoppaði og skoppaði af kátínu. Ég gældi við liminn og rúnkaði honum smá á meðan ég týndi klemmurnar eina af annarri af pungnum á honum. Auðvitað voru þær búnar að vera mis lengi og þar af leiðandi var vont að taka sumar en ekkert vont að taka aðrar. Þegar allar klemmurnar voru komnar af tottaði ég hann góða stund og losaði hendurnar á honum.
Hann var ekki par hrifinn af mér eftir klemmuleikinn og henti mér því niður í rúmið um leið og hann var laus og tók mig harkalega. Ég aftur á móti skemmti mér konunglega, hvort tveggja með hann bundinn og varnarlausan og eftir að hann losnaði.

Ummæli

Vinsælar færslur