Showers n' growers

Ég las það í Vikunni í haust að limir karlmanna geta ýmist verið showers eða growers.

Showers eru þeir sem að lengjast eða stækka ekki mikið við stinningu. Þeir eru þá væntanlega tiltölulega stórir þegar þeir eru slakir og eflaust öfundsverðir í sturtuklefanum.

Growers eru þeir sem að lengjast eða stækka við stinningu. Þeir láta þá lítið fara fyrir sér þangað til á hólminn er komið.

Samkvæmt blaðinu eru lang flestir limir growers. Sjálf hef ég ekki hitt á shower svo ég muni en man eftir nokkrum grower-um sem að leyndu vel á sér. Það væri samt mjög skemmtilegt að kynnast einhverjum shower, bara til að koma því í reynslubankann.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Einn shower hérna. Þú lætur bara vita ;)

Vinsælar færslur