Til sölu

Eitthvað var ég að væflast í vefheimum og skoða fasteignir. Ekki það að ég sé að fara að kaupa mér fasteign en það er fjarlægur draumur að eiga afdrep í höfuðborginni.

Ég datt niður á eina rosalega fallega stúdíóíbúð í miðbænum. Íbúðin er björt og falleg með flottum innréttingum. Þegar ég var að skoða myndirnar rann upp fyrir mér ljós. Ég hef stundað kynlíf í þessari íbúð! En ekki hvað? 

Það var fljótlega eftir að við G opnuðum sambandið að ég kíkti þangað seint um kvöld og stoppaði í einhverja tvo tíma. Þetta eiginlega náði því varla að vera einnar nætur gaman, þar sem það fór alls ekki öll nóttin í þetta. Aftur á móti var þetta mjög skemmtilegur og eftirminnilegur hittingur. Strákurinn stakk svo af til útlanda nokkrum dögum seinna og ég sé ekki fram á að endurtaka leikinn. 

Ég ætlaði að skrifa sögu um þetta á sínum tíma... Það er kannski bara kominn tími á hana. 

Ummæli

Vinsælar færslur