Krot

Endur fyrir löngu sá ég klámmynd. Þetta var svosem ekkert merkileg klámmynd þannig . Frönsk, það var BDSM ívaf í henni, ein gella, nokkrir gaurar í vinnusamfestingum. Það skiptir eiginlega minnstu máli.

Eitt við þessa mynd heillaði mig alveg upp úr skónum og mér hefur ekki tekist að hrista það af mér. Þeir tóku varalit upp úr töskunni hennar og þeir krotuðu á hana með honum. Mín menntaskólafranska er ekki betri en svo að ég hef ekki hugmynd um hvað þeir skrifuðu en þessi hugmynd finnst mér ótrúlega spennandi. Hún kveikti svolítið í mér og þetta er eitthvað sem að mig langar að prófa einhverntíman. Það er eitthvað sérstaklega druslulegt við þetta. Smá sóðalegheit einhvernveginn og örlítill angi af niðurlægingu... kinky ;o)

Ummæli

Vinsælar færslur