Kynlífsrannsóknir

Ég hef ótrúlega gaman af kynlífi og flestu því tengdu og ég hef ótrúlega gaman af allskonar rannsóknum. Þeir sem þekkja mig betur en aðrir hafa oftar en einusinni og oftar en tvisvar heyrt mig byrja setningu á: Rannsóknir hafa sýnt fram á... 

Þannig að áðan þegar ég var að leita heimilda fyrir ritgerð fyrir skólann datt mér í hug að slá inn kinky leitarorð inn í leitarvélina. Það fyrsta sem mér datt í hug var einfaldlega BDSM  (auðvitað).
Niðurstöðurnar stóðu ekki á sér og fjöldinn allur af allskonar rannsóknum tengdum BDSM dönsuðu um skjáinn minn. Mér leið eins og barni í sælgætisverslun á laugardegi. Hver greinin á fætur annari fannst mér ótrúlega spennandi og mig langaði að lesa þær allar! Í einni svipan dauð sá ég eftir því að hafa ekki tekið kynlíf eða BDSM fyrir í Bs-verkefninu mínu. Það verður víst ekkert gert í því úr þessu. Ég á þó enn Masters-verkefni eftir ;o)

Núna verða rómantísku ástarsögurnar lagðar á hilluna og kvöldlesturinn verður harðkjarna kynlífs-rannsóknargreinar. Ég ætti þá ekki að verða uppskroppa með blogghugmyndir.

Ummæli

Vinsælar færslur