Kynlífs klúbbur

Í síðasta pósti sagði ég ykkur frá vinkonu minni sem er að upplifa nýja og óneitanlega spennandi hluti í kynlífinu sínu. Það er alveg ómetanlegt að eiga vini sem maður getur rætt þessa hluti við. Kannski er það samt bara perrinn ég sem hef svona mikla þörf á því... en þegar við spjöllum saman leiðist talið oft og iðullega á þessar brautir.

Nýjasta nýtt hjá þeim er að fara saman í kynlífsklúbb í kóngsins Köbenhavn. Þegar vinkona mín benti mér á þennan klúbb var ég svo gott sem búin að panta flugmiðann og bjóða mér með þeim.

Þangað mætir fólk bara, skiptir um föt og er að striplast, perrast og stunda heitt og sveitt kynlíf eins og því lystir. Í þessum klúbb eru gangbang kvöld (hvar skrái ég mig?), BDSM kvöld (já takk!), kynningar og margt fleira sem ég skil ekki almennilega vegna minnar takmörkuðu dönskukunnáttu. Vinkona mín heldur varla vatni yfir þessu og ég held að ég sé mögulega verri en hún...

Hver vill koma með mér til Danmerkur?

Ummæli

Nafnlaus sagði…
pant fara með þig þanngað hvenar sem er!

Vinsælar færslur