Útlit eftir góðan leik

Ég hef örugglega einhverntíman útlistað það hvaða áhrif góður leikur hefur á mig. Maður gengur um á bleiku skýji og er afslappaður og dreymandi á svip... hugurinn er á flugi og maður er umflotinn einhverri sælu sem fæst ekki annarsstaðar. Ég hef oft verið á þessum stað og þetta er yndislegur staður að vera á.

Ekki alls fyrir löngu fór ég í kaffi til eins kinky vinar. Við sátum og ræddum lífsins gagn og nauðsynjar yfir kaffi, rúnstykkjum og snúð með súkkulaði(hörðu súkkulaði meira að segja).
Ég vissi að hann hafði verið að leika fyrr um daginn. Í leik þar sem að hann var undir og pýndur alveg í spað.
Það hefði samt enginn þurft að segja mér það því það sást langar leiðir. Hann hafði þetta dreymandi augnarráð, þetta rosalega afslappaða fas og það var eins og hann væri með annan fótinn í öðrum heimi. Hann hefur eflaust ennþá verið á bleika skýinu sínu og langt frá því að vera lentur. Ef að ég hefði ekki vitað betur hefði ég eflaust haldið að hann væri á einhverju.

Ef að ég væri að búa til alfræðiorðabók, þá hefði verið réttast að taka mynd af honum og hafa hana sem skýringu á því hvernig fólk lítur út eftir góðan leik. 

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég á nú bágt með að það sé hægt að sjá á fólki að það hafi verið í einhverjum sadómasó leik, nema þá á áverkunum

Vinsælar færslur