Íslenskt BDSM líf á RÚV

Miðvikudagskvöldið 8. október hóf göngu sína þáttaröð sem nefninst Hæpið á RÚV.
Í fyrsta þætti hentu þáttastjórnendurnir sér út í djúpu laugina og sýndu frá BDSM partýi. Viðtöl voru tekin við BDSM iðkenndur og brotabrot sýnd frá leikjum. Umfjöllunin var mjög góð, fordómalaus og heiðarleg.

Það sem ég tók sérstaklega eftir í þeim örstuttu klippum sem sýndu frá BDSM leikjum var virðing partýgestanna til þess sem átti sér stað, það virtist ríkja fullkomin sátt um það sem fram fór, nektin var engin, nándin og innilegheitin skinu í gegn og rúsínan í pylsuendanum var sólskinsbrosið á andliti eins partýgestsin þegar hann var losaður úr plastbindingu. Þetta hefur greinilega verið vel heppnað partý.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Virðist vera lítið fútt í þessum bdsm partýum

Vinsælar færslur