Þjónustulund í lagi

Í sumar fór ég til Þýskalands. Ég var þar stödd í einhverjum smábæ(á þeirra mælikvarða) í tæplega tvær vikur. Í þessum bæ fann ég eina dótabúð, svolítið af tilviljun bara. Að sjálfsögðu fór ég inn í búðina til að skoða úrvalið. Þessi búð var, eins og bærinn sjálfur, mjög lítil. Úrvalið var hinsvegar gott og þarna var hægt að finna allskonar allskonar dót. Næstum harðkjarna BDSM dót niður í algjöra vanillu og allt þar á milli. 

Það sem að mér finnst svo æðislegt við erlendar dótabúðir er að þar er oft hægt að prófa dótið. Nei, ekki svoleiðis prófa það! Heldur fá að handleika það og fikta í því. Finna kraftinn eða ekki kraftinn, eftir því sem við á. 

Mér datt í hug að nýta tækifærið og kanna hvort ég finndi titrandi butplug í hentugri stærð. Ég fann ekkert í fljótu bragði og hóaði í afgreiðslustúlkuna og spurði hana eftir því. Hún kunni ákaflega takmarkaða ensku en var öll af vilja gerð. Ekki áttu þau til butplug sem mig langaði í. En á sýningarborðinu hjá þeim var eitt og annað spennandi. Ég fór að benda og spyrja og prófa og fikta. Og hún var rosalega dugleg í að sýna mér og rétta mér dótið sem ég sýndi áhuga.
Svo kom ég að þráðlausu eggi með fjarstýringu sem hefði eflaust virkað vel á geimskultu frá NAZA svo flókið var þetta. Ég prófaði og fiktaði og ýtti á alla mögulega og ómögulega takka en ekkert gerðist. Ég snéri mér þá að stúlkunni og spurði hana hvernig dótið virkaði eiginlega. Hún virtist skilja spurninguna vel, en samt ekki alveg, því hún hikaði talsvert áður en hún fór að útskýra á sinni bjöguðu ensku að eggið titraði, og að það væru margar stillingar á því, svo sagði hún það færi inn í píkuna og svo kom eitthvað um fullnægingar... og ég eiginlega stoppaði hana þar. 
Það eina sem ég vildi vita var hvernig maður kveikti á árans apparatinu og í ljós kom að apparatið var batteríslaust.

Ummæli

Vinsælar færslur