Meistaramánuður

Ég rak tærnar inn á munch í síðustu viku. Þar var hópur af fallegu fólki eins og venjulega. Á meðal þeirra var einn nýliði sem ég hlammaði mér við hliðina á og tók tali. Í ljós kom að hann hafði skráð sig inn á fetlife deginum áður, eða deginum þar áður, og var strax mættur á munch. Talandi um að taka meistaramánuð með trompi og henda sér út fyrir þægindarrammann.
Ég tek ofan fyrir svona einstaklingum. Það tók mig alveg nokkurn tíma að telja í mig kjark til að skella mér á munch eftir hlé.

Ummæli

Vinsælar færslur