Örfantasía

Ég var að keyra í vinnuna í dag. Á leiðinni mætti ég jeppa og sá ekki betur en að bílstjóri jeppans væri myndarlegur alskeggjaður maður. Skyndilega skaut niður í höfuðið á mér örstuttri örfantasíu.

Ég er í fanginu á þessum manni. Hann kyssir blíðlega á mér viðbeinið og staðinn þar sem hálsinn byrjar. Hann réttir úr sér og ég finn skeggið hans strjúkast við vanga minn áður en kann smellir litlum kossi á gagnaugað mitt.

Þó svo að örfantasíurnar mínar séu vissulega ör-fantasíur og verði til á sekúndubroti og sjaldan lengri en ein mínúta í framkvæmd, þá eru þær fullar af allskonar smáatriðum. Eins og þessi: ég get sagt ykkur að maðurinn (í fantasíunni allavega) er frekar hávaxinn, sennilega um 185 cm. Þegar hann stendur uppréttur gæti ég staðið í fanginu á honum og hvílt höfuð mitt rétt undir kjálka hans, þannig að skeggið kítlar ennið og mögulega augu. Hann er grannur og stæltur, án þess að vera svaka massaður og hann lyktar vel....

Ummæli

Vinsælar færslur