Enn meira af leikföngum

Já, ég er pínulítið með leikföng á heilanum þessa dagana. Er bæði búin að vera að föndra leikföng, panta mér leikföng (það er eitt á leiðinni til mín í pósti) og skoða leikföng á veraldarvefnum.

Vissuð þið að dýrasta kynlífsleikfangið heitir Gjöf Beckhams? David Beckham lét hanna þennan ofur titrara fyrir Viktoríu konuna sína þegar hún var ólétt. Stykkið kostar rúmar 218 milljónir íslenskra krónna, enda er þetta platínum víbrador allsettur demöntum og dúlleríi og það fylgir hálsmen með og allt. Þetta er algjört háklassa apparat, svo fínt að maður getur ekki einusinni fundið mynd af því á netinu. 

Fleiri fáranlega dýr kynlífsleikföng eru meðal annars Hin konunglega perla, sem er víbrator með kórónu á endanum, alsettur steinum og fíneríi. Perlan kostar í kringum 120 milljónir íslenskra krónna. Svo er hægt að fá gull titrara frá Lelo Inez á 1,8 milljón. Það sem mér þótti helst merkilegt við hann er að það var tekið fram að það fylgdi eins árs ábyrgð á titraranum. Ég held að það sé alveg hægt að fá sambærilega ábyrgð á leikföngunum sem ekki eru úr gulli! Hvernig ætli það sé hjá þeim í Adam og Evu? 

Hvað mig varðar þá er ég miklu frekar til í venjulegan titrara sem kostar ekki hönd og fót og stinga afgangnum af 218 milljónunum inn á bankabók. 

Ummæli

Vinsælar færslur