Fryggðarlyf

Í gegnum tíðina hefur maður heyrt sitthvað af frygðarlyfjum. Mulin nashyrningshorn, ígulker, súkkulaði og ostrur eiga að auka á kynhvötina samkvæmt alþýðuspekinni. Ég sjálf geri ekki mikið af því að borða nashyrningshorn, ígulker, ostrur eða súkkulaði svo ég get ekki kvittað undir virkni þeirra í þessum efnum. Hinsvegar hef ég komist að því að ég bregst á þennan hátt við rauðvíni og kaffi. Ofur einfaldir hversdagslegir hlutir.
Núna til dæmis sit ég á bókasafninu með hálfkláraða ritgerð í einum glugga, bók við vinstri höndina sem ég ætti að vera að skrifa upp úr og kaffibollan mér til hægri. Eftir að hafa sötrað svolítið af kaffinu þá finn ég bara hvernig líkaminn tekur við sér. Hann kallar eftir snertingu og atlotum til að koma kynörvuninni í gang. Það er þessi lúmski fiðringur sem fer um mann og allt í einu fattar maður að maður er löngu hættur að skrifa ritgerðina og er sokkinn í dagdrauma með mis-blautu ívafi....

Ummæli

Vinsælar færslur