Lífið

Þessa dagana er ég að læra á sjálfa mig upp á nýtt og hvernig lífið er á lyfjum. Á heildina litið er það ekki svo slæmt, þunglyndið nær ekki að bíta í mig og ég kemst í gegnum daginn eins og ekkert sé. Líka álagsdagana. Hinsvegar þá virðist vera eins og það sé einhver ósýnileg filma á milli mín og umheimsins. Hann hefur ekki sömu áhrif á mig og hann gerði þegar ég var ekki á lyfjunum. Það er eins og ég þurfi meiri örvun og meira áreiti til að fá sömu eða svipaða upplifun af því og þegar maður þarf meiri örvun og áreiti, þá verður upplifunin langt frá því að vera eins. Þetta á við um allskonar hluti: stjörnubjartan næturhiminn þar sem maður horfir út í himingeiminn, sorglega bíómynd sem ég myndi undir venjulegum kringumstæðum fá kökk í hálsinn yfir, æsispennandi skáldsögu sem ég gæti venjulega ekki lagt frá mér, smá strokur og snertingar sem gætu leitt til einhvers meira, sjálfsfróun, kynlíf og BDSM svo eitthvað sé nefnt.

Kynlífslöngunin er reyndar að koma til baka en ekki eins og ég þekkti hana. Ég verð... Það er erfitt að útskýra það en ég ætla samt að reyna. Ég verð undirliggjandi gröð. Ég finn það djúpt niðri að ég er gröð og ég finn löngun í eitthvað kynferðislegt. Það er hinsvegar djúpt á því og ég þarf að hafa fyrir því að nálgast það. Um daginn fann ég þessa tilfinningu. Ég var gröð einhversstaðar djúpt innra með mér. Mig langaði að fróa mér svo ég ákvað að nýta tækifærið að vera ein heima. Ég strauk um staði sem venjulega veittu mér unað en fann fljótlega að það var hálf tilgangslaust í þetta skiptið. Hendurnar leituðu á næmustu staði líkamans og jú þetta var gott, en ekki æsandi og örvandi. Snertingin kallaði ekki á enn meiri snertingu eins og venjulega. Hún hríslaðist ekki um mig og hafði ekki áhrif um allan líkamann. Hún var ljúf og góð og notaleg en ekkert meira. Ég gafst ekki upp og reyndi aðra tækni og teygði mig í egg og fantasíu. Það var betra en dugði ekki til. Eftir fyrstu sekúndurnar með eggið við snýpinn varð tilfinningin aftur þessi notalega en ekki æsandi. Að sama skapi náði fantasían mér ekki á flug og brotlenti fljótlega í einhverju rómantísku rugli en ekki sjóðheitu kynlífi eins og ætlunin var. Ég lét ekki deigan síga og náði í dildó og aðra fantasíu. Og jú, ef að ég hamaðist duglega þá var þetta að virka. Þannig að þá var bara málið að hamast duglega. Ég prófaði meira að segja nokkrar stellingar til að ná fram sem mestri örvun. Eftir margar margar mínútur og mikinn hamagang þá loksins fór fullnægingin að láta bóla á sér. Hún kom og hún fór aftur og staldraði stutt við. Hún var að sama skapi ekki mjög öflug og það fór ekki mikið fyrir henni....

Sem er einmitt ástæðan fyrir því að ég hef ekki nennt að fróa mér síðan.

Ummæli

Vinsælar færslur