Sæðismaski

Þessi snót notar sæði í andlitsmaskann sinn og vill meina að það sé allra meina bót.

Maður hefur heyrt að brundur ætti að vera til margs nytsamlegur. Til dæmis góður fyrir húðina, hvítti tennur, hollur og stútfullur af vítamínum. Auk þess eru ekki nema ca 10 kaloríur í skammtinum þannig að hann er ekki fitandi.

Í kynfræðslunni hef ég sagt við krakkana að þetta séu að mestu leiti gróusögur til að gera brundleiki álitlegri í augun kvenþjóðarinnar, karlmönnunum í hag. Í þessu tilfelli ætla ég ekki að fella einhverja sleggjudóma en þangað til ég sé vísindalega rannsókn um ágæti sæðis sem andlitsmaska umfram lyfleysu áhrifin og aðra andlitsmaska, þá er ég ekki að fara að láta brunda framan í mig í fegurðarskyni.

Ummæli

Vinsælar færslur