Munch

Í síðasta pósti voru smá upplýsingar um fetlife. Næsta mál á dagskrá eru þá munchin. Reykjavík munch eru kaffihúsahittingar fólks sem hefur áhuga á BDSM eða einhverju því tengdu, Þetta er vetvangur fyrir fólk sem hneigist BDSM til að hittast, spjalla og njóta samverunnar hvort við annað. Munchin fara fram á Vínsmakkaranum eitt mánudagskvöld og eitt miðvikudagskvöld í mánuði. Alla jafna eru bara perralingar á svæðinu, svo nýliðar þurfa ekki að óttast að einhverjar vanillur eigi eftir að sjá sig í fylgt með perralingum.
Meira og minna allir hafa kviðið fyrsta munchinu sínu en hingað til hafa allir lifað það af. Nýliðar þurfa ekki að óttast að það komist upp að þeir hafi farið á munch, því að í senunni ríkir mikill trúnaður og fólk er ekki að segja utanaðkomandi aðilum hverjir voru og hverjir voru ekki á munchinu. Málið er bara að mæta, segja hæ og mögulega kynna sig sem nýliða. Það má líka bara mæta og segja ekki neitt og hlusta bara, þó ég mæli miklu frekar með hinu.
Margir segjast ekki þora að mæta ef að þeir skyldu þekkja einhvern, eða einhver þekki þá sem er á munchinu. Ég blæs á svoleiðis fullyrðingar, því við erum öll þarna í sama tilgangi. Sá sem hefur mætt á mörg munch er alveg jafn berskjaldaður fyrir nýliða sem þekkir hann á öðrum vetvangi, eins og nýliðinn fyrir þeim sem fyrir er. Hinsvegar þá segja margir sem hafa mætt á munch að þeir hafi aldrei kynnst jafn opnum og skemmtilegum hóp af fólki og perralingum. Ekkert umræðuefni er heilagt og umræðurnar eru iðullega á léttu og skemmtilegu nótunum.
Aðrir pæla í því hver ágóðinn er af því að mæta á munch. Fyrir utan að kynnast fullt af frábæru fólki sem hefur áhuga á sömu kinky hlutunum, og getur frætt mann og sáð allskonar hugmyndafræjum í kollinn á manni. Þá er það að mæta á munch lykillinn inn í senuna og BDSM partýin. Það að hafa mætt á munch hjálpar líka mikið til þegar maður er að leita sér að leikfélaga. Margir, þar á meðal ég, eru miklu opnari fyrir því að leika við fólk sem hefur mætt á munch en fólk sem neitar að mæta. Ég er meira að segja farin að gera þá kröfu á mögulega leikfélaga að viðkomandi hafi mætt á munch. En það er bara ég.
Ef að þú ert forvitinn um BDSM og langar að kynnast því betur. Kíktu á munch og segðu hæ. Ég hlakka til að sjá þig.


Ummæli

Vinsælar færslur