Af hlutverkaleikum og ircinu

Þegar ég var lítil og fékk mína fyrstu tölvu þá uppgvötaði ég ircið -spjallforrit þar sem maður getur hitt allskonar fólk frá allskonar löndum. Inni á ircinu hékk ég daga og nætur. Ég kynntist fullt af áhugaverðu og skemmtilegu fólki, þar á meðal nokkrum hjásvæfur og einum kærasta. Ég kynntist mönnum af erlendu bergi sem og íslensku og ég kynntist BDSM í gegnum ircið. Í rauninni á ég ircinu margt að þakka.

Ekki alls fyrir löngu datt ég aftur inn á ircið, fyrir forvitnissakir frekar en eitthvað annað. Einhvernveginn fann ég server fullan af perrum og þar var ég komin í leikfangaland! Mitt eigið einka leikfangaland þar sem allir heimsins perrar og fantasíur voru rétt í seilingarfjarlægð. Og það var yndislegt!

Ein rásin stærsta rásin er fyrir þá sem aðhyllast hlutverkaleiki í hvaða mynd sem er og þar er mig iðullega að finna. Þar get ég látið villtustu fantasíur mínar rætast, án tillits til tíma og rúms. Þar hef ég líka gleymt mér tímunum saman.... Ég hef verið miðalda prinsessa, dregin á tálar af hershöfðingja föður míns. Ég hef verið forvitin stúlkukind að fikta við galdrabók sem ég erfði frá gamalli frænku og kallaði óvart fram sadískan djöful úr undirheimunum, en ekki lostapúka. Ég hef verið þræll manns sem keypti mig á leynilegu netuppboði. Ég hef verið leikfang yfirnáttúrulegs, sadísks meistara. Ég hef verið drottning, notuð og niðurlægð manninum sem gerði innrás og tók yfir ríki manns míns. Ég hef verið hrein mey og ég hef verið sóða drusla. Ég hef verið yngri en ég er í raun og eldri. Ég hef verið einhver í forneskjunni og framtíðinni. Ég hef verið ég sjálf og ég hef verið einhver allt önnur. Ég hef upplifað hluti sem eru beinlínis ómögulegir í raunheimum og ég elska það! Þetta örvar mig á hátt sem ég kann illa skil á. Hugrænt og mjög svo kynferðislega.... Ef einhver myndi vilja borga mér fyrir þetta, þá væri starfsframinn minn ráðinn fyrir lífstíð!

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvaða ircserver, og hvaða rás(ir)?
(og hver ert þú þar? :)
Prinsessan sagði…
Serverinn sem ég er mest inn á er Irc.Cuff-Link.Me

Rásirnar "mínar" eru roleplayofallkinds og bondage.

Hver ég er... Það er ekki erfitt að finna það út ef að ég tengd. ;o)
Nafnlaus sagði…
Hef það í huga ;-)
Nafnlaus sagði…
Góðan og gleðilegan daginn í dag, sendi þér hugskeyti ;-)

Vinsælar færslur