Afsláttadagar

Reglulega fæ ég skilaboð inni á einkamal.is þar sem ég er spurð hvort ég vilji ríða. Bara si svona.

Ertu gröð? Viltu ríða?

Svarið er undantekningarlaust Nei!

Nei, ég vil ekki ríða einhverjum gaur af handahófi sem ég veit ekkert um og hef alveg fengið ein skilaboð frá. Ég vil hafa þennan neista á milli okkar. 
Ég vil að mig langi að ríða þér, sem einstaklingi, af því að þú heillar mig, ekki bara af því að þú ert með typpi. Ég laðast að pakkanum: útlitinu, persónunni, hegðuninni, röddinni, og þetta samspil gerir þig girnilegan í mínum augum. Ekki bara tippið, ekki bara af því að þú ert tilkippilegur.
Að sama skapi hef ég aldrei skilið fólk sem er bara til í það, si svona, án þess að spá í hvort að það þekki manneskjuna eða ekki. Það bara hendir sér í djúpu laugina og fær sér á broddinn.

Nema.... Í þessu greddukasti sem ég er búin að vera í undanfarið hef ég alveg verið tilbúin að gefa feitan afslátt af þessu pakkadæmi öllu saman. Ef að þú ert ekki ómyndarlegur og ert snyrtilegur til fara, og lyktar vel, ert með typpi sem virkar og vilt nota það: þá er ég til í tuskið!! 
Bónus stig fyrir að vera úthaldsgóður!



Ummæli

Vinsælar færslur