Bíóferð

Ég skellti mér í bíó um daginn og sá alla 50 gráu skuggana. Eins og ég sagði ekki alls fyrir löngu þá hrista margir perralingar hausinn yfir myndinni. Ég vildi hinsvegar getað tekið þátt í þeirri umræðu sem á sér stað í kringum BDSM og myndina og gerði mér ferð í kvikmyndahús landsins af þeim sökum.

Sem kvikmynd er myndin mjög langdregin. Það gerist ekki margt í henni, það var ekkert ris, enginn hápunktur og svo var hún bara búin! Ég var alveg tilbúin til að fara þegar myndin var búin og var staðin upp áður en leikaralistinn birtist á skjánum.

Samband þeirra Önu og Krissa er frekar súrt í myndinni. Hann er lokaður, með einhvern svaka pakka sem hann er að burðast með og vill ekki einusinni ræða hlutina. Þau eru bæði meiriháttar skotin hvort í öðru. En það hvað hann er lokaður og vill ekki ræða hlutina verður til þess að allt springur í loft upp.

BDSM sem fyrirbæri kemur hinsvegar mjög vel fyrir í myndinni. Krissi vill endilega að Ana beygi sig eftir sínum reglum. Hann lætur hana hafa ítarlegan samning sem tiltekur allskonar allskonar og þau leggja línurnar á formlegum fundi. Hvað má og hvað má ekki gera. Til að mynda má ekki binda hana upp í loft (hún veit ekki af hverju hún er að missa!!).
Síðan er sýnt frá allskonar BDSM leikjum á mjög erótískan og fallegan hátt. Leikherbergið hans er geggjað! Mig langar í svoleiðis. Í því er rúm, bekkur, loft sem hægt er að binda í allsstaðar og leikföng af öllum stærðum og gerðum. Krissi var með einn flogger sem ég hreinlega slefaði yfir.
Öryggisorð og notkun þess kemur skýrt fram í myndinni og mikið er lagt upp með samþykki beggja.

Ég held að þessi mynd virki vel til að opna augu fólks fyrir BDSM og gerir það vel, að frátöldu sambandinu þeirra.

Sprengingin þeirra á milli kemur til vegna þess að hann vill ekki ræða eitthvað úr fortíðinni. Þau fara að rífast. Hún spyr hvort að hann vilji refsa sér, sem hann segist vilja. Hún fer þá fram á að hann geri það. Hann gefur henni margar útgönguleiðir en hún krefst þessa af honum engu að síður.

Sér einhver annar en ég ruglið í þessu?!
Hver heilvita dom og sub ætti að vita að maður gerir ekki svona. Maður fer ekki í einhvern leik í uppnámi. Subbinn er búinn að vera að rífast og skammast, ýta á viðkvæma staði og domminn er orðinn reiður og kominn í baklás. Það er ekki forsenda fyrir því að gera neitt sem tengist BDSM, eða sársauka ef út í það er farið. Þetta var líka sett upp sem refsins, sex virkilega vond högg með belti, ætluð til að meiða, og verandi í uppnámi hefur hann eflaust lamið fastar en ella. Enda rauk hún á dyr eftir þetta... og myndin var búin.


Ummæli

Vinsælar færslur