Bústaðaferð

Beikonlykt fyllir loftið og stemmingin hér er almennt góð. Ég sit í sófanum, mér á hægri hönd er stærðarinnar hundabúr, í botninu á því er teppi og bolti. Utanfrá séð erum við eflaust bara stór hópur af fólki í bústaðaferð að skemmta sér. Góður matur, mikið spjall, eitthvað um spil og einn og einn að sötra bjór. Við erum með fjóra bústaði, í hverjum bústaði eru níu einstaklingar. Hvað eru það margir? Af þeim eru allir kinky og það er yndislegt!!

Þegar skyggja tekur (eða ekki þegar skyggja tekur, því dagurinn er stöðugt að lengjast) þá fara hlutirnir að gerast. Gærkvöldið var samt frekar rólegt. Í mínum bústað var hundahald, þvert á reglur bústaðanna. Til þess var einmitt búrið tekið með. Falleg stelpa sat í búrinu megnið af kvöldinu og fékk klapp nærstaddra. Við eldhúsborðið var verið að leika sér með rafmagn og nálar, og á rápi á milli bústaða mættum við pari, konu með mann í bandi. Hann var með gaddaól um hálsinn, svona hundaól þar sem gaddarnir snúa inn á við.... Á röltinu mættum við líka einum færasta shibari bindisnilling senunnar og ég snýkti út bindingu hjá honum. Hann batt mig í einskonar rólu og ég náði góðu andlegu svifi hjá honum. Það var meirháttar!

En, núna eru diskarnir komnir á borðið, eggin komin á pönnuna og maturinn alveg að byrja. Garnirnar gaula og ég er farin að fá vatn í munninn.

Ég skal segja ykkur allt af því sem koma skal seinna....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hvenær kemur framhaldið?

Vinsælar færslur