Flottasta viðtalið

Ég heyrði því fleigt fram að þetta væri ein besta umfjöllunin um BDSM í íslenskum fjölmiðlum til þessa. Þegar þessi færsla er skrifuð er ég bara búin að hlusta á um helminginn af þættinum en þetta er svo sannarlega ein besta umfjöllunin um BDSM sem ég hef heyrt í íslenskum fjölmiðlum. 

Þannig að hrós dagsins fá þessir frábæru fjórir einstaklingar sem skelltu sér til þeirra Önnu Töru og Hugleiks í Kynlega kvista á Rás 2, Dagný, Snæfríður, Edda og Magnús. Þið eruð flottir framherjar BDSM senunnar á Íslandi. 

Ummæli

Vinsælar færslur