Nýjar kenndir

Ég hef áður komið inn á það á blogginu mínu að konur eiga sitt besta kynlíf á milli þrítugs og fertugs. Það var allavega upp úr þrítugu. 
-Fyrst þegar ég hnaut um þetta þá var ég ung og vitlaus og blés á þetta. Mitt kynlíf var sko best í heimi! 
-Síðan fór þriðji tugur minnar ævi að nálgast og þá fór ég að horfa á þetta jákvæðari augum. Það var gott að hugsa til þess að maður eigi eftir að stunda frábært kynlíf, þó svo maður verði stór. 
-Svo kom að því að ég varð 30 ára. Það gerðist fyrr á þessu ári og þó svo ég sé tiltölulega ný stigin inn á fertugsaldurinn þá held ég að það sé nokkuð til þessari staðhæfingu. Kynlífið mitt er betra en það hefur verið hingað til. 
Ég er ennþá að læra nýja hluti, ég er ennþá að læra á sjálfa mig og komast að því hvað mér finnst gott. Í dag er ég t.d. fljótari að fá fullnægingu en bara fyrir tveimur árum síðan. Ég er líka opnari, ef eitthvað er, og tilbúnari í að gefa hlutum séns sem ég hef litið hornauga hingað til. Ég er tilbúin að stíga út fyrir þægindarammann á þessu sviði, sem og öðrum. 

Ummæli

Vinsælar færslur