Píslargerpið mitt

Mig langar að segja ykkur frá subbinum mínum -sem ég eignaðist alveg óvart.

Eftir eitt af grunn- og öryggisnámskeiðum BDSM á Íslandi fékk ég póst frá einum áhugasömum nýliða. Hann hafði kíkt hingað inn af og til í fyrndinni, og bloggið mitt varð til þess að hann og konan hans duttu inn í senuna. Ég var auðvitað rígmontin af því!
Hann sendi mér svo sögubyrjun og stakk upp á samstarfi við skriftir. Á þeim tíma var hausinn á mér ekki í lagi og þrátt fyrir að mér hafi fundist þetta góð hugmynd fékk ég mig ekki til að svara bréfinu frá honum og halda áfram með söguna. Þegar ég svo sá hann svo tengdann inni á fetlife-spjallinu einn daginn sagði ég .
Við spjölluðum smá og upp úr krafsinu kom að hann átti sér draum um að hitta einhverja sæta dömu og njóta samvista við hana og sötra kaffi, án alls klæða. Einhverra hluta vegna sló ég til og nokkrum dögum seinna sátum við hérna allsnakin og drukkum kaffi.

Hann langaði að sjá dótið mitt. Ég var ekki sein að draga fram dótatöskuna og halda einkasýningu fyrir hann. Í kjölfarið langaði hann að fá að prófa eitt og annað af því og ég sló til. Hann fékk vel út látin högg á botninn sem að hann emjaði og skrækti undan og ég naut mín í botn. Það heppnaðist svo vel að hann vildi endilega fá að gera aftur og meira, og ég sló til.
Í mínum huga var hann þæginlegur leikfélagi. Honum fannst minnsta málið að bruna til mín og mér fannst gaman að leika við hann. Hann hafði þæginlega nærveru og það var gaman að spjalla og hanga með honum. Ég hugsaði þetta samt ekki meira en frá leik til leiks.

Fljótlega vatt þetta samt upp á sig þannig að við tókum leik saman í leikpartýi.
Ég drottnaði yfir honum og leyfði öðrum partýgestum að banka í afturendan á honum. Leikurinn vakti talsverða athygli og kátínu partýgesta, mér, og honum, til mikillar gleði.

Í partýinu var fullt af fólki og margir áhugaverðir og skemmtilegir einstaklingar. Honum fannst það ekki síður en mér. Næst þegar við svo hittumst fór hann að tala við mig um hinn og þennan sem hann langaði að leika við.
Einhverra hluta vegna snerti það sáran streng í brjósti mér. Við vorum hinsvegar ekki skuldbundin hvort öðru og ég skildi vel að hann vildi nota nýfengið frelsi til að leika við aðra en konuna sína.
Ég reyndi ekki að draga úr þessu hjá honum en bað hann að gera það þannig að hann væri ekki að snapa sér fleiri leikfélaga í návist minni, og gott ef ég sagði honum að það sem að hann gerði með öðrum kæmi mér ekki við og ég vildi helst ekki vita af því.
Hann horfði á mig hugsi á svip og spurði svo hvort ég vildi fá þá stöðu gagnvart honum að hann mætti ekki leika við aðra nema með mínu leyfi, og að aðrir sem vildu leika við hann yrðu að biðja mig um leyfi til þess. Ef satt best skal segja kom þetta mér alveg í opna skjöldu og ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að bregðast við. Við ræddum þetta aðeins og komumst að því að dæmið gæti hæglega gengið upp. Hann gerði þó þá kröfu að hann yrði skráður undirgefinn mér inni á fetlife. Fimm mínútum seinna átti ég sub. Það var ekki ætlunin að taka þetta skref þegar hann kom í þennan leikhitting, en það endaði samt þannig og ég hef ekki séð eftir því.

Allt í einu opnaðist mér heimur sem ég hafði ekki leitt hugann að í mörg ár.
Hugmyndir streymdu inn í huga minn og mig langaði að gera allt og ekkert með píslargerpinu mínu. Hann er líka þeim hæfileika gæddur að honum tekst að draga mig út fyrir minn þægindarramma sem dómína. Hann ögrar mér á mjög skemmtilegan máta og þrátt fyrir að við höfum leikið í mjög skamman tíman þá hef ég fullt af sögum sem mig langar að deila með ykkur, Allt í einu er ég farin að gera hluti sem ég hafði ekki hugsað út í áður. Ég er farin að víkka þægindarramman og er stöðugt að finna leiðir til að gera eitthvað nýtt og öðruvísi.

Ég er líka farin að læra að njóta þess að vera í þessu hlutverki. Athyglin og alúðin sem hann hefur veitt mér er ómetanleg, þjónustan og hollustan sem hann hefur sýnt mér fyllir mig stolti og ég er ríg montin af subbinum, pílargerpinu mínu, og því sem að við höfum.

Ummæli

Vinsælar færslur