Góður dráttur

Sinadráttur er skárri en enginn dráttur sagði einhver einhverntíman. Ég er ekki alveg sammála þessu. Hinsvegar þá kemst ekkert í hálfkvist á við virkilega góðan drátt. Ég fékk svoleiðis í gærkvöldi... og aftur í morgun... og svo aftur...

Þetta var svona dráttur þar sem maður var sveltur fyrir og búinn að láta sig dreyma um hann lengi. Loksins þegar hittingurinn átti sér stað fann ég að ég var pínu feimin og örlítið óörugg, enda langt síðan síðast, en vá hvað mig langaði svo mjög. Svo loks þegar feimin bráði af mér og greddan tók völdin var þetta engu líkt. 
Ég fann það strax að ég vildi fá það og að ég myndi ekki vera lengi við það. Ég vissi líka upp á hár hvernig ég vildi fá það. Ég heimtaði að hann ríddi mér á meðan fingurnir gældu við þrútinn snípinn. Hann afsakaði sig og skrapp fram til að nota salernið. Á meðan fitlaði ég við mig og hugsaði til þess sem koma skildi. Í fyrsta skipti á ævi minni þurfti ég að halda aftur af mér til að fá það ekki... Í tvígang!! Rétt á meðan hann var á salerninu.
Þegar hann kom aftur var tekið til við sömu iðju og áður. Hann reið mér ákveðið og ég fitlaði við mig á sama tíma. Ég fann hvernig líkami minn spenntist upp á móti honum, hvernig ég vildi sleppa mér í greddunni. Ég hinsvegar einbeitti mér að því að slaka á og fann hvernig ég færðist enn nær fullnægingu með hverri slökun sem ég tók. Á ótrúlega skömmum tíma (miðað við mig) þá var ég komin á barm fullnægingar, enda hafði ég í tvígang verið næstum búin að fá það skömmu áður. 
Ég leyfði fullnægingunni að heltaka mig, stundi og engdist um. Við það að ég fékk það fílelfdist leikfélaginn og tók að ríða mér með öllum kröftum. 
Ég horfði á það hvernig hann umturnaðist í óargadýr á mér. Augun fylltust af ákefð og heift, mun meiri en ég hef séð áður. Sú sjón var ótrúlega æsandi og meira að segja núna þegar mér verður hugsað til þess þá finn ég hroll fara um mig. 
Ég vissi hvað hann langaði og stundi því upp að ég vildi að hann myndi slá mig. Hann virtist fá auka kraft við það. Hann reið mér dýrslega og á sama tíma sló hann brjóst mín og líkama. 
Ég hefði viljað halda áfram svona inn í nóttina enda var ég óendanlega gröð þrátt fyrir að vera ný búin að fá það. Hann hinsvegar var á brún eigin fullnægingar. Ég fylgdist með unaðnum taka völdin og með dýrslegum stunum fékk hann það. Sú sjón, þau hljóð... VÁ! 
Ég hef sjaldan upplifað jafn öfluga og æsandi fullnægingu karlmanns. Móður og másandi lagðist hann svo við hlið mér og við fléttuðum saman líkama okkar í innilegu og frekar sveittu kúri.

Ummæli

Vinsælar færslur