Kynþokkafulla konan

Um daginn sat ég fund. Sú sem talaði á fundinum var kona sem er nokkuð eldri en ég. Það er ekki hægt að segja um hana að hún hafi verið sérlega fríð, svona miðað við samfélagslega staðla, en hún var meira en lítið kynþokkafull. Ég átti erfitt með að henda reiður á það hvað það var nákvæmlega sem gerði hana svona kynþokkafulla.

  • Ekki var það útlitið, því ég hef margoft séð fríðari konur. 
  • Ekki var það hvernig hún var til höfð, því að hárið var frekar úfið og andlitsfarðinn hefði getað verið vandaðri. 
  • Ekki var það hvernig hún var klædd, í svartar buxur og svartan rúllukragabol. 
  • Ekki var það vöxturinn, að minnsta kosti ekki miðað við samfélagslega staða um að grannt sé gott, því hún var með maga og mjaðmir og rass og brjóst og allt. 

Það var ekkert sem hægt var að benda á si svona. Mögulega var það fasið hennar og hvernig hún bar sig. Hún bar sig af sjálfstrausti og það var greinilegt að henni leið vel í eigin líkama. Ég er ekki frá því að það hafi skinið í gegn að henni sjálfri fannst hún vera flott klædd og kynþokkafull, og það skilaði sér vel til áheyrendanna.
Það var ekki vöxturinn, hárið, klæðarburðurinn, andlitsfarðinn eða nokkuð annað því líkt. Það var hún sjálf. Hún sjálf var ótrúlega kynþokkafull og ég skil það vel að karlarnir í hópnum hafi gónað á hana.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ ég verð að taka undir þetta. Kynþokkafyllstu konurnar eru þær sem bera sig vel og líður vel eins og þær eru. Og þær sem syna bara smá hugmynd að því hvað þær eru með en ekki bara bert hold.

Vinsælar færslur