Maðurinn á næsta borði

Á meðan ég sötraði latte og beið eftir herranum mínum á fyrrnefndu stefnumóti fór ég alveg óvart að hlera símtalið sem átti sér stað á næsta borði.
Kannski var það af því að mér leiddist, kannski var það af því að það hljómaði áhugavert, hver veit.
En ég heyrði ekki betur en að kauðinn væri að ræða við annan um komandi svallferð, mögulega kynsvallsferð. Mér skyldist að þau væru fjögur pör að fara saman. Þetta er víst ákaflega góður hópur af fólki. Eitt parið virtist samt vera nýtt í þessu og það drekkur ekki. En það verður samt ekkert mál, þau eru nú svo afslöppuð hvort eð er. Það styttist víst óðum í þetta og þá getur maður víst farið að leyfa sér að hlakka til. Staðsetningin var rædd til þaula, kostir og gallar við hinn eða þennan staðinn og það var greinilegt að maðurinn var mjög spenntur fyrir því sem koma skal. Hann meira að segja sagðist vera spenntur eins og lítill krakki á jólunum.
Ég skemmti mér konunglega yfir þessu símtali. Það var greinilegt að hann vildi ekki segja of mikið um það sem var í vændum og talaði nokkuð mikið undir rós. Það ýtti enn meira á hugmyndir mínar um að hann væri sannarlega að fara í kynsvallsferð, en ekki almenna svallferð. Helst hefði ég viljað spyrja kauða út í þetta og kanna hvort ég mætti kannski koma líka.... Hann var samt í símanum alveg þangað til að herrann minn mætti á svæðið. Ég held að það hefði ekki verið við hæfi að pikka í gaurinn á næsta borði og óska eftir að fá að leika við hann, þegar maður er á stefnumóti með öðrum.


Ummæli

Vinsælar færslur